Um ESB-veituna
Sjálfstætt upplýsingaverkefni sem gerir heimildir, forsendur og óvissu sýnilega.

Hvers vegna er þessi síða til?
Í aðdraganda atkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands og umræðu um hugsanlega framtíðaraðild er mikið magn upplýsinga í umferð. Fyrir almenning getur verið erfitt að greina á milli staðreynda, túlkunar, spáa og fullyrðinga sem eru rangar, villandi eða teknar úr samhengi.
ESB-veitan var stofnuð til að auðvelda þetta. Markmiðið er að bjóða upp á hlutlausan upplýsingavettvang þar sem fólk getur leitað svara, prófað fullyrðingar og opnað heimildirnar sem niðurstöðurnar byggja á. Síðan tekur enga afstöðu með eða á móti aðild Íslands að ESB og ráðleggur fólki ekki hvernig það eigi að greiða atkvæði.
Hver stendur að baki verkefninu?
ESB-veitan er stofnuð, hönnuð og rekin af Halldóri Þór Svavarssyni, sem jafnframt ber ritstjórnarlega ábyrgð á verkefninu. Enginn stjórnmálaflokkur eða hagsmunasamtök koma að rekstri, vali heimilda eða ritstjórnarlegum ákvörðunum vefsins.
Ég er öryrki með mikinn áhuga á tækni og samfélagsmálum. Hugmyndin að ESB-veitunni kviknaði þegar ég leitaði sjálfur að upplýsingum og áttaði mig á því hversu erfitt getur verið að finna skýr, rekjanleg og óhlutdræg svör á einum stað. Í opinberri umræðu rakst ég jafnframt á fullyrðingar — meðal annars frá kjörnum fulltrúum og öðrum þátttakendum í umræðunni — sem reyndust ýmist ónákvæmar, skorti mikilvægt samhengi eða stóðust ekki nánari skoðun. Það varð hvatinn að því að byggja vettvang þar sem almenningur getur skoðað heimildirnar sjálfur og myndað sér eigin afstöðu.
Gagnsæi um pólitísk tengsl
Halldór er skráður félagi í Sjálfstæðisflokknum. Hann gegnir engum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn, vinnur ekki fyrir hann og flokkurinn kemur ekki að rekstri eða ritstjórn ESB-veitunnar. Þessi aðild er birt hér svo notendur geti sjálfir metið mögulega hagsmunaárekstra. Sama ritstjórnarlega aðferð, heimildakröfur og framsetning óvissu eiga að gilda óháð því hvort niðurstaða styður málflutning með eða á móti aðild.
Hvernig virkar síðan?
Þegar notandi spyr spurningar eða setur inn fullyrðingu velur kerfið viðeigandi efni úr yfirförnum heimildagrunni. Gervigreind er síðan notuð til að semja samantekt úr því efni. Hvert svar sýnir tengdar heimildir, traustsmat og sérstakan kafla um það sem er óvíst svo notandinn geti sannreynt niðurstöðuna.
Gervigreindin ákveður ekki sjálf hvaða heimildir teljast traustar. Heimildagrunnurinn og ritstjórnarreglurnar eru mótaðar af ábyrgðaraðila og tilkynnt eða vafasamt efni fer í mannlega yfirferð. Kerfið getur gert mistök og því eru notendur hvattir til að opna frumheimildirnar.
Gagnsæi í hnotskurn
- Stofnandi og ritstjórnarleg ábyrgð
- Halldór Þór Svavarsson · halldorthor@esbveitan.is
- Pólitísk tengsl
- Skráður félagi í Sjálfstæðisflokknum; engin trúnaðarstörf og vinnur ekki fyrir flokkinn
- Stjórnmálaflokkar eða hagsmunasamtök
- Koma ekki að rekstri eða ritstjórn verkefnisins
- Auglýsingar
- Engar
- Gervigreindarþjónusta
- OpenAI API
- Almennar fyrirspurnir
- esbveitan@esbveitan.is
- Heimildir, leiðréttingar og ritstjórn
- ritstjorn@esbveitan.is
